Frí heimsending með dropp ef verslað er fyrir 15þúsund!

Search
Close this search box.

         Frí heimsending með dropp ef verslað fyrir 15.000 kr

Hálsplástur

Hálsplásturinn hjálpar þér að vinna gegn láréttum línum og hrukkum á hálsi

7.590 kr.

Availability: Á lager

Hrukkur á hálsi eru oft með þeim fyrstu sem myndast. Oft vill hálsinn gleymast hjá okkur í húðumhirðu. Hálsplásturinn hjálpar til í þeirri baráttu á skömmum tíma. Plásturinn vefur sig utan um hálsinn þægilega og hjálpar þannig til að koma í veg fyrir að húðin krumpist og að láréttar línur og hrukkur geti myndast. Á sama tíma styður plásturinn við náttúrlega hæfni húðarinnar til að viðhalda raka, örva blóðflæði og auka kollagen framleiðslu. 

Plástarnir virka á húðina yfir nótt eða á daginn.

 

Við mælum með
Þrífið plástrana eftir notkun með Sílikonplástra sápunni. Sápan er sérstaklega hönnuð til þess að leysa upp húðfitu og dauðar húðfrumur sem safnast fyrir í plástrunum án þess að tæra upp límið. Þetta eykur endingartíma plástrana til muna.

Notkun

1. Hreinsið og þurrkið húðina vel. Varist að setja einhverskonar húðvörur á tiltekin svæði

2. Fjarlægið plastfilmu plástursins til að afhjúpa límið

3. Leggið plásturinn á rétt svæði. Límhlið snýr að húð

4. Notið plásturinn yfir nótt til að ná sem bestum árangri eða í 1-2 klukkustundir yfir daginn til að fríska upp á þreytta húð

5. Eftir notkun skal fjarlægja plásturinn varlega af og líma á spjaldið sem fylgir pakkningunni

Innihaldsefni

100% hágæða læknasílikon

Plástrarnir okkar eru gerðir með sömu tæki og læknasílikon sem notað er á skurði eftir aðgerðir.

Galdurinn bakvið læknasílikon er að það gerir húðinni kleift að halda sinni náttúrulegu hæfni og viðhalda raka. Bilið sem myndast á milli plásturs og húðar örvar blóðflæði og eykur kollagenframleiðslu sem stuðlar að heilbrigðari og unglegri húð.

Árangur

Rannsókn var gerð á 92 þátttakendum á aldursbilinu 35-74 ára:

  • 81% upplifðu sléttari húð á hálsi
  • 90% upplifðu stinnari húð 
  • 92.1% upplifðu aukinn raka
Shopping Cart

Skráðu þig á póstlista Wrinkles Schminkles og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun!