Frí heimsending með dropp ef verslað er fyrir 15þúsund!

         Frí heimsending með dropp ef verslað fyrir 15.000 kr

Sale!

Bringupakkinn

Pakki fyrir sléttara og ljómandi bringusvæði!

8.067 kr.

Bringuplástur

Bringuplásturinn minnkar ásýnd á hrukkum og fínum línum á brjósta- og bringusvæði

Á lager

Bringumaski (1stk)

Lífbrjótanlegur bringumaski sem inniheldur meðal annars hýalúrónsýru, C-vítamín, B3-vítamín og sníglaslím

Á lager

Bringupakkinn inniheldur endurnýtanlega bringuplásturinn (1stk) og stakann bringumaska. Frábær pakki fyrir þá sem vilja herja á fínar línur, hrukkur, þurra húð, mislit í húð og sólarskemmdir á bringusvæði.

Við mælum með að sofa með bringuplásturinn og nota síðan maskann um leið og þú vaknar í 20 mínútur. Ekki skal setja neinar húðvörur á bringuna áður en plásturinn er límdur á.

Notkun

Notkun bringuplásturs

1. Hreinsið og þurrkið húðina vel. Varist að setja einhverskonar húðvörur á tiltekin svæði

2. Fjarlægið plastfilmu plástursins til að afhjúpa límið

3. Leggið plásturinn á rétt svæði. Límhlið snýr að húð

4. Notið plásturinn yfir nótt til að ná sem bestum árangri eða í 1-2 klukkustundir yfir daginn til að fríska upp á þreytta húð

5. Eftir notkun skal fjarlægja plásturinn varlega af og líma á spjaldið sem fylgir pakkningunni

Notkun bringumaska

1. Opnið pokann og fjarlægið filmurnar af maskanum. Setjið maskann á bringuna

2. Leyfið maskanum að liggja á í 15-20 mínútur meðan hann vinnur sína vinnu

3. Fjarlægið maskann og nuddið seruminu sem eftir er vel inn í húðina

Innihaldsefni

Innihaldsefni bringuplásturs

100% hágæða læknasílikon

Plástrarnir okkar eru gerðir með sömu tæki og læknasílikon sem notað er á skurði eftir aðgerðir.

Galdurinn bakvið læknasílikon er að það gerir húðinni kleift að halda sinni náttúrulegu hæfni og viðhalda raka. Bilið sem myndast á milli plásturs og húðar örvar blóðflæði og eykur kollagenframleiðslu sem stuðlar að heilbrigðari og unglegri húð

Innihaldsefni bringumaska

Hýalúrónsýrur
Auka raka og örva kollagen framleiðslu. Berjast gegn sindurefnum og viðhalda teygjanleika húðarinnar

Sniglaslím
Leiðréttir sólarbletti ásamt því að jafna út fínar línur og hrukkur

Vítamín C
Vinnur á sólarskemmdum í húð eftir útfjólubláa (UV) geisla

Vítamín B3
Dregur úr hrukkum, jafnar húðlit og vinnur á dökkum blettum

Öll innihaldsefni
Aqua, Butylene Glycol, Glycerin, Niacinamide, Sodium Ascorbyl Phosphate,Trehalose, Hydroxyacetophenone, 1,2-Hexanediol, Pvp, PEG-40 Hydrogenated Castor Oil, Aloe Barbadensis Leaf Juice, Polyacrylate Crosspolymer-6, Xanthan Gum, Sodium Hyaluronate, Glycosaminoglycans, Persea Gratissima (Avocado) Oil, Camellia Sinensis Leaf Extract, Sodium Benzoate,T-Butyl Alcohol, Potassium Sorbate, Phenoxyethanol, Citric Acid.

Shopping Cart

Skráðu þig á póstlista Wrinkles Schminkles og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun!