DROPP FYRIR JÓL 🎁

22.DES – HÖFUÐBORGARSV., SUÐV. HORNIÐ,AKUREYRI OG EGILSSTAÐIR

19.DES – AÐRIR STAÐIR 

Search
Close this search box.

         Frí heimsending með dropp ef verslað fyrir 15.000 kr

Örnálaplástrar (1par)

Örnálaplástrar sem eru sjálfuppleysanlegir. Innihalda kollagen, hýalúrónsýru, peptíð og koffín.

3.190 kr.

Availability: Á lager

Örnálaplástrar sem eru sjálfuppleysanlegir. Nýstárleg tækni sem skila virkum efnum beint og djúpt inn í húðina sem oft er erfitt að taka upp. Örnálaplástrar eru sársaukalaus meðferð sem spýtir kollageni, hýalúrónsýru, koffíni og peptíðum inn í húðina. Innihaldsefnin eru nærandi og rakagefandi fyrir húðina og hafa einnig fyrirbyggjandi áhrif gegn öldrun. 

Með 1800 míkrónálum virka örnálaplástrarnir þannig að þeir leysast upp sjálfir og losa virku innihaldsefnin inn í húðlög húðarinnar og hjálpa þannig til við að slétta úr fínum línum og hrukkum. 

Plástarnir eru sérstaklega hannaðir til að passa undir augun, í kringum munninn eða á mitt ennið. Míkrónálarnar okkar eru myndaðar úr kristallaðri hýalúrónsýru, koffíni, kollageni og peptíðum. Þessi nýstárlega tækni gerir virku innihaldsefnunum í hverri míkrónál kleift að komast inn í húðþekjuna og leysast upp, fylla og endurnýja frumurnar.

Ekki skal nota neinar húðvörur á tiltekið svæði áður en plástrarnir eru límdir á.

  • FYLLING með kollageni: Hjálpar til við að þétta og stinna húðina á sama og það hvetur til meiri teygjanleika hennar.
  • RAKI með hýalúrónsýru:  Bætir raka og framleiðslu á kollageni í húðinni, berst gegn sindurefnum og viðheldur mýkt.
  • STYRKUR með peptíðum: Byggir upp styrk í húðinni, eykur framleiðslu kollagens og vinnur að því að styðja við virkni annarra innihaldsefna.
  • LÝSING með koffíni: Styrkir og lýsir húðina, dregur úr hrukkum og sléttir úr sýnilegum fínum línum í húðinni.

Notkun

1. Hreinsið andlitið og verið viss um að húðin sé þurr og laus við allar aðrar húðvörur

2. Fjarlægið hlífðarlímmiðann af plástrinum

3. Setjið plásturinn á svæðið – gangið úr skugga um að örnálarnar snúi að húðinni og ýtið létt á plástrana í 5-10 sekúndur til þess að virkja þá. Hafið plástrana á í amk 4 klukkustundir, yfir nótt eða hvenær sem er yfir daginn

4. Fjarlægið plástrana og njótið afrakstursins

Innihaldsefni

Kollagen
Hjálpar til við að þétta og stinna húðina á sama tíma og það hvetur til meiri teygjanleika húðarinnar

Hýalúrónsýra
Bætir raka og framleiðslu á kollageni í húðinni, berst gegn sindurefnum og viðheldur mýkt húðarinnar

Peptíð
Byggir upp styrk í húðinni, dregur úr hrukkum og sléttur úr fínum línum

Koffín
Styrkir og lýsir húðina, dregur úr hrukkum og sléttir úr fínum línum

Öll innihaldsefni
Sodium Hyaluronate, Hydrolyzed Collagen, Sodium Hyaluronate Crosspolymer-2, Niacinamide, Caffeine, Acetyl Hexapeptide-8

Árangur

  • 96% upplifðu sléttari húð í kringum augun
  • 92% upplifðu sléttari húð í kringum munninn
  • 92,2% upplifðu aukinn raka
Shopping Cart

Skráðu þig á póstlista Wrinkles Schminkles og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun!